Og hananú sagði kerling...
...ég er vægast sagt lélegur ritari, það er komið á hreint. Samt sem áður hefur reyndar verið alveg klikkað mikið að gera hjá mér - júnímánuður var pakkaður af vinnu & það sem af er júlí hefur eiginlega bara verið frekar súrt; ég með stöðuga fyrirtíðaspennu & kvíðaköst einsog illa tæpur geðsjúklingur... Maður er svo eðlilegur eitthvað. Var að enda við að tala við hana Heiðu mína, það var æði - höfum ekki átt almennilegt spjall í hundrað ár; hún er svo mikil perla í skel. Svo hef ég verið að velta því fyrir mér í sambandi alla smáu hluti sem manni finnst e-n veginn vera sjálfsagt, maður á það til að láta þá fljóta framhjá sér & fyrr en varir er orðið of seint að gera eitthvað í hlutunum. Það er þannig að maður getur ekki breytt neinni manneskju nema sjálfri sér, & ég ákvað um daginn að taka mig alveg í gegn. Ég er gjörsamlega orðin stöðnuð & nett rotin pía í það heila. Nú fer ég að vera skemmtileg, held að ég geti það nefninlega alveg þegar ég tek mig til... búin að vera herfilega leiðinleg & pirrandi undanfarið, en nú skal breyting þar á. Búið að vera nóg að gera í vinnunni, alltaf jafn yndislegt & gott fólk þar á ferð; hver persóna annari frábærari. Haukur sætasti algjör engill & gullmoli, hefði ekki getað órað fyrir því að það væri hægt að bera svona miklar & sterkar tilfinningar til annarar manneskju, takk fyrir að gefa mér færi á því!!
Annars bara langar mig að koma því á framfæri að mér þykir ótrúlega mikið vænt um fólkið í kringum mig & óska öllum alls þess besta út úr lífinu. Eigið yndisfríðan dag;)

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home