27 júlí 2006

Fallvalt líf...

Sá lærir sem lifir... maður ætti líka að læra það að vera duglegri að sinna öllum þeim sem manni þykir vænt um, lífið hefur margsannað það að það er ekki um neina miskunn að ræða & það virðist sem oft sé ekki hægt að átta sig fyrr en allt er orðið of seint. Var að lesa bloggið hjá Ómari, gömlum vini sem á, meðal annara, um afar sárt að binda þessa dagana; ég finn til svo mikillar samúðar. Maður verður að fara að læra að taka lífinu ekki sem sjálfsögðum hlut...það er svo margt sem er til staðar & manni finnst að muni alltaf vera þar, sama hvað - en eins & svo oft áður kemur annað í ljós.
Mig langar svo oft að vera betri manneskja, gefa af mér & hjálpa þeim sem þurfa á því að halda. Afhverju er ekki bara hægt að hætta að hugsa & fara að framkvæma? Það er mitt markmið. Annars er bara búið að vera nóg að gera hjá mér undanfarið, fer í sumarpróf í ágúst & þarf að fara að haska mér í lærdómnum. Langar svo líka að fara að finna e-a spennandi ferð til að fara í um jólin, það er alveg draumurinn að vera á Kanarí eða álíka.
Aftur komin í Trimform, eftir alltof langa pásu & líka búin að druslast í Baðhúsið - ekki veitti af:/ Svo er veturinn á næsta leyti, það tók því þá að fá sumarið;)) fljótara en fljótast að líða!!
Jesús, er með æluna í hálsinum - meika ekki að skrifa meir; síjú*

1 Comments:

Anonymous inga said...

já hrund mín...tíminn líður allt of HRATT!!! allavega finnst mér bara eins og það sé ennþá júní..en neinei gaddem ágúst er komin og stutt í skólann og helv....haustið...síðan bara jól og nýtt ár komið...jejjjj lífið er of yndislegt er þaggi. En hafðu það gott í dag ;) og ég er stollt af okkur með að drullast í trimform, komin með nóg af því að vera eins og gamalt lík ;) þannig let's enjoy the rest of the month with "STYLE" heyrumst honeypei ;)

þriðjudagur, 01 ágúst, 2006  

Sendu inn athugasemd

<< Home