Halló halló
Maður er stundum svo súr... hef verið illilega upptekin e-ð undanfarið & þegar ég er ekki að vinna, er ég hreinlega pínu löt & eyði mestum mínum tíma með ástarpúðanum mínum. Vil allavegana alls ekki vera bara e-ð hangsandi í tölvunni þegar það koma góðir dagar til að gera eitthvað allt, allt annað:) Annars bara fínasta að frétta, loksins komin á skrið með að fara að koma íbúðinni á sölu, máluðum t.d. um helgina - bæði vinnubílinn hans Hauks að innan & stofuna líka...maður er "stundum" svo virkur...
Væri alveg til í að smella mér norður á Landsmót um helgina en er víst að vinna á föstudaginn & á stand by alla helgina, geri þá víst eitthvað voða lítið af viti... Fæ reyndar alveg svaka frábært frí lok mánaðarins & þá verður maður að reyna að smella sér í pínu útilegu eða e-ð út á land í það minnsta.
Skrifa meira við fyrsta tækifæri. Síjú sugars*

6 Comments:
jáhá...helvíti eru þið hjónin mögnuð ;) var ekki annars bara fínt að eyða helginni í að mála, frekar en að djamma út í eitt ;) hehe
bara kvitta fyrir mig :)
bestu kveðjur !
Takk fyrir það:)
Takk fyrir það:)
Til hamingju með bloggið.. gott að það er nóg að gera hjá þér... þú hefðir átt að fara með okkur láru í rafting um síðustu helgi Það var bara gaman.. hafðu það gott í fríinu þínu, hver veit nema við hittumst á selfossi Því ég verð líka í fríi í lok júlí og ætla mér að vera á selfossi :) kveðjur, Lilja B
Hæ skvízulína.... Ætlaði bara að skilja eftir mig smá spor;*;*
Er einmitt líka að fara í frí... Get ekki beðið!!
Knús;*;*
Sendu inn athugasemd
<< Home