Seint skrifa sumir...
en skrifa þó... ferlega hefur verið langt síðan síðast. Svosem ekki mikið markvert búið að gerast, en maður er allavegana enn á jörðinni:) Prófin loks búin, allavegana ein átta sem er komin úr prófunum, enn að bíða eftir hinum einkunnunum - gekk samt alls ekki vel í einu; það var líka aðeins of erfitt...maður getur víst ekki verið alveg fullkominn;)
Annars er ég bara búin að bruna á hjólinu undanfarna daga, enda ekki mikið annað í boði fyrr en ökuréttindin koma til mín á ný þann 22. september!! Það verður sérdeilis skemmtilegur dagur:) Reyndar finnst mér alveg þrælfínt að hjóla bara, fín æfing & góð brennsla - að ógleymdu því hvað mér líður vel við að komast aðeins nær náttúrunni en undanfarið... Sem minnir mig á það að ég þarf nauðsynlega að fara að drífa mig austur á hestbak!!
Svo er tíminn alveg hrikalega fljótur að líða; búin að eiga kærasta í hálft ár í dag - & það er sko áfangi út af fyrir sig; ekki grunaði mig það fyrir rúmu hálfu ári að ég ætti nokkru sinni eftir að byrja á föstu. En þetta er búið að vera voða gott allt saman; agalega krúttaralegt & skemmtilegt.
Get ekki beðið eftir því að byrja svo að fljúga aftur, smá upprifjunarnámskeið í lok mánaðarins & svo getur maður farið að skella eilífðarbrosinu upp & setja góða skapið í fyrirrúm. Maður er alltaf eitthvað svo glaður í flugvél, með fullt af kátu fólki á leið til útlanda.
En annars, bið hrikalega vel að heilsa & vona að þið eigið yndislegan dag - það ætla ég allavegana að reyna að gera:)

14 Comments:
Til hamingju með krúsíammælið;*;* Þið eruð æði!!
Djöfull öfunda ég þig af sumardjobbinu... Ekki leiðinlegt það!!
**Knús og sumarkveðja**
sammála fyrri ræumanni henni Dagný :) og eigðu allveg frábæran dag sömuleiðis! og til hamingju með bloggið, haha hélt bara að þú værir horfin á tíma:)
Takk innilega englarnir mínir; svo yndisleg:) Já, það lá við að ég væri komin yfir móðuna miklu í þessu blessaða bloggi...en held ég reyni að standa mig úr þessu - maður má ekki bregðast dyggum lesendum:)
Til hamingju með "afmælið" og að vera búin í prófum !Það er svo yndisleg tilfinning að vera búin/n...
Kíki stundum hérna við en skil ekki eftir mig nein ummerki. Takk fyrir að kíkja á síðuna hjá lillunni minni ( Hrafnhildi)
Kv, Unnur
Takk Unnur mín - hún er svo sæt:)
Sæl og til hamingju með próflokin og áttuna sem komin er, aldrei leiðinlegt að fá áttu. Geri ráð fyrir að þú sért búin að taka ærlegt djamm í tilefni prófloka og sambandsafmælis.:-) kisses and love Lilja Björg
Takk Lillí mín - & nebbs... ekkert djamm undanfarið, bara rólegheit:) Kv.Hrundsa
Tilhamingju, og hvað það hlítu að ver aæðislegt að fljúga, væri sko alveg til í það!
Er svo sammála þér með að hjóla, þeð er bara hlevíti fínt ;)
knús, chloé
Hæ sæta mín....
Til lukku með 17. maí, prófin og góða skapið.
Hafðu það gott engill
knús
Rakel
Ég þekki flugfreyju....;-)
Hmmm hvað gerði stlepan af sér til að missa prófið.. hehe;) En æðislegt að allt gengur vel hjá þér krútta og vertu bara dugleg á hjólinu;) Og hvert á að fara með flugvélinni?
Hvað segiru Hrund.....ertu hætt að blogga??? uhmmm.....Það er kannski mikið að gera við að vinnunni, no time for blog ;) hafðu það gott skvís c ya
Hehe ég hef eh lesið þetta vitlaust um daginn hélt þú værir sjálf á leið til útlanda.. haha En já Hrund fara koma með eh skemmtilegt!;) Eh flugferðar sögur hlýtur að lenda oft í eh fyndnum atvikum með fullt að fullu liði í flugvél!;)
Hrund er greinilega alveg búnað gefast upp á blogginu ;) hehe Hafðu það gott honeypie og vona að helgin hafi verið nice ;)
Sendu inn athugasemd
<< Home