23 apríl 2006

Halló súkkulaðisykurpúðar...

Hérna er allt við sama heygarðshornið - á auðvitað að vera að læra, en finnst ég verða að segja nett hæ & aðeins rúmlega það, er ekki að standa mig í stykkinu...
Ég er eiginlega nokkuð viss um að ég er fíkill - og þá meina ég fíkill á allt; ef mér finnst eitthvð gott, þá á ég það til að fá æði fyrir því & hef einmitt lent í því þónokkuð oft með t.d. banana & kavíar, kremið af kókosbollum, græn epli, allskyns sósur, abmjólk með ávöxtum & fullt af e-u drulli, kartöflur, maltöl & appelsín... borða nánast bara það sama í öll mál þangað til ég get ekki hugsað mér að láta það ofan í mig aftur. En svo hugsa ég bara viðstöðulaust um að mig langi í eitthvað - alltaf eitthvað nartandi og hef sjálfsstjórn á við heiladauðan fisk... frekar vonlaus & ég er viss um að þetta er einhvers konar sjúkdómur.
Annars er bara allt alveg ótrúlega fallegt hérna á heimilinu, eintóm gleði & hamingja alla daga.
Prófin byrja í næstu viku svo það verða bara rólegheit næstu helgar (eins og svosem undanfarnar) afþví ég verð í bókum allan sólarhringinn!! Engar pásur - nema auðvitað til að leika aðeins við minn heittelskaða & jafnvel til að sofa svona rétt á milli 4 & 7 á næturnar...
Er farin að lesa, hópknús & ósk um yndislega viku:)

10 Comments:

Anonymous Inga said...

jiiiii minn eini Hrund, þú verður bara að byrja að reykja aftur til að losna við nartið...hehehe djók ;) en ég held að þegar maður er búin að vera löt við að fara í ræktina þá eykst þetta blessaða nart. En já prófin taka svoldið mikinn tíma, en ég þau eru bara 1 og hálfa viku þannig eftir smá tíma eru við komin í sumarfríi...!!! Þannig vertu nú dugleg Hrund og hafðu það gott skvís.....heyrumst

þriðjudagur, 25 apríl, 2006  
Anonymous Heiddi said...

hehe þetta er ekki sjúkdómur !
ég nefnilega er svona líka:)
maður hugsar um hvað manni langi í næst, nánast um leið og fyrri máltíðin er búin hehe sturlun !
eins gott að maður sé ekki hnöttóttur haha

þriðjudagur, 25 apríl, 2006  
Anonymous Heiddi said...

ps: good luck í prófunum annars! :)

þriðjudagur, 25 apríl, 2006  
Blogger Hrund said...

Nákvæmlega, já kannski maður byrji bara aftur á reykingunum;)
...takk´skan, reyni að gera mitt besta:)

þriðjudagur, 25 apríl, 2006  
Anonymous Nafnlaus said...

Æ guð hvað ég skil þig...
elska svona prófatarnir, fer allt í mess hjá manni.. mataræði svefn og annað sem vert er að hafa reglu á... gangi þér annars bara vel í þessu öllu saman! ætlar þú svo að verða stjórnmálakona þegar þú verður stór?
kv, Lilja

miðvikudagur, 26 apríl, 2006  
Blogger Agnes said...

Úff hvað ég kannast við þetta að taka eitt fyrir og borða það bara nánast í öll mál þangað til að maður fær ógeð... er nákvæmlega eins!! Og nartið.. jesús! Anyway's langaði bara að óska þér góðs gengis í prófunum (ef þau eru þá ekki búin)!;)

miðvikudagur, 03 maí, 2006  
Anonymous Halla said...

Þessar mataráráttur þínar líkjast grunsamlega óléttueinkennum!!! ertu að komast í hóp ofurmæðranna í vinkvennahópnum??

miðvikudagur, 03 maí, 2006  
Blogger Hrund said...

Takk æðislega fyrir það Lilja & Agnes; neibbs - fyrsta á morgun;) og Halla, come on... slíkt hendir ekki fólk eins og mig; ekki nema kannski í kringum fertugt í fyrsta lagi! Ég á lítinn hund og það er fínt fyrir krakka einsog mig...

miðvikudagur, 03 maí, 2006  
Anonymous Chloé Ophelia said...

gangi þér vel í prófunum!
datt inn á síðuna þína og vildi bara heilsa uppá! flott síða!

mánudagur, 15 maí, 2006  
Blogger Hrund said...

Takk fyrir það sætust:)

miðvikudagur, 17 maí, 2006  

Sendu inn athugasemd

<< Home