Seint skrifa sumir...
Axel Óli & Eva aðalgella eiga afmæli í dag; þau eru algjörir gullmolar. Til hamingju með það:)
Tölvan mín er enn bara gallsúr úti í Nýherja og sú nýja hefur örugglega bara farið í B-pósti eða með einhverri skútu miðað við það hversu langan tíma þetta hefur tekið. Búið að vera frekar mikið að gera undanfarið, fór t.d. austur um helgina og hitti Drífu & Maríönnu meðal annara. Alltof vonlaust hvað maður hittir vini sína sjaldan, jafnvel þó þeir búi í næstu götu. Það er eiginlega bara til skammar.
Svo var hvolpaskólinn brjáðsnjalli í gærkvöldi, Pixy litla þarf nú að mennta sig eins og maður sjálfur - gekk misvel svona, en þetta kemur eflaust á endanum þó maður geri sér ekkert neinar svaka væntingar til þessa smáa heila:)
Varð svo guðslifandi fegin í morgun, þar sem við áttum fimm saman að flytja fyrirlestur í einum tíma en það slapp sem betur fer og bíður fram í næstu viku. Ég var byrjuð að roðna í gærkvöldi sko & með æluna uppi í hálsi frameftir morgni , finnst allt svona alveg hreint gjörsamlega vonlaust í alla staði. Maður er bara svo suddalega bældur... Við vorum búnar að æfa okkur svaka vel, en þetta er sko ekki mitt sérsvið, skrópaði oft bara í framhaldsskóla þegar eitthvað svona "standa fyrir framan alla og tala" blasti við. Fer alveg í kerfi og enda í skjálfandi í kvíðakasti með tímabundna heilalömun. Verður bara flökurt við tilhugsunina...
Mér finnst annars bara afar gaman að vera til þessa dagana og vona að allir hafi það sem allra best:)

11 Comments:
Ég veit hver á afmæli í DAG!!!!! Til hamingju elsku hjartans hnoðrinn minn með daginn og megi hann vera þér hamingjuríkur sem og allir aðrir dagar í þinni framtíð;o) Til hamingju enn og aftur hjartað mitt....get sennilega ekki hringt í þig í dag.....5 klst.í prófum og önnur geðveiki, vinna og e-ð. En ég stefni að því þegar það fer að hægjast um beibí!!! Knús!
This comment has been removed by a blog administrator.
hahahahaha já það er ekki gaman að þurfa halda fyrirlestur og til lukku með að hann frestaðist. En já hvolpaskólinn er náttla snilld... mjög gaman að reyna kenna hundi að sita, Lucy er ekki að fíla þetta, held hún sé með baun í stað heila. En HAPPY BIRTHDAY HRUND og have a nice day ;)
Til Hamingju með afmælið elksu Hrund, eigðu góðan dag:-) kveðja Lilja Björg
Til hamingju með daginn sæta mín. Bara að líta á svona kynningar sem tækifær og reynslu...þíðir ekkert annað. Hef ekki trú á öðru en að þú standir þig vel. Eigðu góðan dag kjútí....knús ;*
Takk svo mikið elsku snúllumúslurnar mínar;) Gangi þér vel í prófinu Anna mín:)
ég segi nú bara ,,til hamingju með að hafa sloppið við fyrirlesturinn,, hehe,, djöf.. skil ég þig vel :)
allavega bara kasta á þig kveðju:)
Við mössum þennan fyrirlestrarfjanda bara í næstu viku! Og til hamingju með daginn, þó svo það sé komið aðeins framyfir miðnætti, en það ætti nú ekki að koma að sök:)
Takk elsku englasólir; Mússímússí - og já, fyrirlesturinn verður meikaður:)
Guð hvað ég kannast við þetta fyrirlestradæmi! Hehe ég gerði það nákvæmlega sama þegar ég var í skóla!;) En hey hvar fórstu í hundaskóla? Er að fara með minn;) Þetta skíta og pissa dæmi er ekki alveg að ganga hjá honum...
Heyrðu Kalla beib, hún er í hundaskóla HRFÍ, svo er líka til Hundalíf.is & Gallerý Voff - held þetta séu allt mjög góðir skólar:) Gangi þér vel með lillann...
Sendu inn athugasemd
<< Home